Það hefur einhver mjög fyndinn / ógeðslega fullur / algjörlega
klikkaður / fársjúkur spilafíkill... ja allavega einn af þessum
einstaklingum, skrifað í gestabókina mína aðfaranótt annars dags
jóla eða nákvæmlega 03:51:00!!!
þetta er e-ð
grín.....
Annars gengu jólin
ágætlega fyrir sig.... takk fyrir alla pakkana sem ég fékk,
sérstaklega loðnu handjárnin frá EdduBjörk (sem ég
veit guð átti hugmyndina að..... i take this as a
sign) (já ég er að þakka guði.... hendur upp í loft, loka
augunum, hníg grátandi í gólfið)
.....eða
ekki...
Fór til Egilsstaða (Egs... fyrir þig Signý) yfir áramótin... sem
minnir mig á það... GLEÐILEGT NÝTT ÁR og takk fyrir allar þær ljúfu
stundir á því sem var að líða
En ég skemmti mér konunglega á balli í Valaskjálf..... hitti marga
sem ég á pottþétt að þekkja.... Sif hefur alltaf verið miklu betri
með allt svoleiðis, sérstaklega á frændfólki okkar fyrir austan...
ég veit ekki neitt!
Dæmi: Strax á
flugvellinum á Egs hittum við einhverja konu sem þekkti okkur með
nafni (mig og Sif og ruglaðist ekki... sjaldgæft) Sif byrjaði strax
að spjalla. Ég heilsaði konunni innilega eins og ég vissi
nákvæmlega hver hún væri, sem ég gerði ekki. Ég hafði ekki
hugmynd.... ekki einu sinni smá grun! Spurði Sif um þetta nokkrum
dögum seinna, hún hló að mér og ég man ekki hvað hún sagði svo að
þetta hefði verið... en hvað um það.
annað dæmi: það
kom fólk í heimsókn á nýjársdag (sif farin, og gat því ekki bjargað
mér... gott líka að ég taki fram að ég var nýkomin úr útihlaupi svo
ég var mjög sveitt og ógeðsleg.... mjög skemtilegt þegar maður sér
sjaldséðna ættingja að vera illa útlítandi.... næst þegar ég hitti
þau "nú svo þú ert kannski alveg venjuleg, við vorum að vorkenna
pabba þínum fyrir að eiga svona ógeðslegt og sveitt barn") en...
jább þau voru sem sagt skyld dóttur frænda bróður langafa míns svo
það er kannski ekki furða að ég vissi ekki neitt... samt viss um að
sif hefði skilið þetta betur (minnir samt að langafi minn og afi
hans, mannsins hafi verið bræður eða e-ð svoleiðis... hitt var bara
fyndnara... ég vissi samt ekkert hver þau voru)
en já ballið... ég
þekkti helgu og svo hitti ég davíð og sindra (mamma þeirra og amma
mín eru systur...jei ég veit e-ð) og svo veit ég að það voru fullt
af fleiri ættingjum þarna ég vona bara að þau hafi ekki þekkt mig
því ég þekkti þau ekki.....

en já.. jól og
áramót heppnuðust afbragðsvel og því er ég mjög sátt. Það var líka
ótrúlega gaman að vera aðeins með litla bró og sys. Systir mín(
er svo mikið yndi og bróðir minn (9mán) er skemmtilegasta barn
sem ég hef á ævi minni vitað um og svo er hann líka svo ógeðslega
sætur... þetta verður kappi
nýjustu fréttir: ég er orðin opinber meðlimur
pigeklubs-gengisins, hef verið að stússast smá bak við tjöldin.. ef
við getum sagt það svoleiðis og slæst þar í för með fríðu föruneyti
kvenna sem eru ávallt í fullu fjöri og alltaf til í djamm og
djús
þó eru þær sem lömb inn við
beinið......
svo er EddaBjörk ástin mín búin að vera veik allt of allt of
lengi og ég vona svo mikið að þér fari nú að batna... það gengur
ekki að hafa þig veika svona endalaust
vona að þetta dóp sem þú
ert á virki.... næst er það þá bara kókaínið
annnars er allt gott að frétta bara.... er að fara til
vestmannaeyja á mið til að keppa á móti íbv... stórveldið HK ætlar
sér að sjálfsögðu að taka með sér tvö stig heim, ekkert annað í
myndinni
svo er kópavogur að fara eignast nýjan íbúa... nei ég er
ekki ólétt. Heiðar er víst að fara flytja í bæinn.... það flykkjast
allir hingað.... gott að búa í kópavogi

þetta er samt orðið svolítið langt... sorrý... það var bara
óvart... það les þetta hvort sem er enginn....
síjú beibís
-marta